Sólveig Erlingsdóttir hefur verið ráðin í starf ráðgjafa hjá okkur í Starfsendurhæfingu Vestfjarða Sólveig lauk stúdentsprófi af félagsfræðibraut ásamt sjúkraliðanámi frá menntaskólanum á Ísafirði árið 2005. Árið 2008 lauk hún svo námi sem heilsunuddari við Nuddskóla Íslands og í febrúar 2012 BA prófi í þroskaþjálfafræðum frá Háskóla íslands. Síðastliðinn vetur bætti Sólveig við sig réttindum til þess að starfa sem ungbarnasundkennari og starfar hún ásamt ráðgjafahlutverkinu við þá iðju. Sólveig[…]
Fréttir
Petra Hólmgrímsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Starfsendurhæfingu Vestfjarða frá 1. mars sl. Petra hefur lokið B.Ed. gráðu í kennarafræðum frá Háskólanum á Akureyri og er auk þess með B.Sc. í sálfræði frá Háskóla Íslands og lauk M.Sc. námi í klínískri- og afbrigðasálfræði fá University of South Wales árið 2016. Petra starfaði um árabil sem grunnskólakennari og starfaði síðast sem ráðgjafi Virk á Vestfjörðum Við bjóðum Petru hjartanlega velkomna[…]
SEV mun á næstu vikum bjóða upp á kvikmyndasmiðju fyrir þátttakendur í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða og VMST. Þetta er spennandi verkefni og er hugmyndin að bjóða þátttakendum SEV upp á tækifæri til að kynnast kvikmyndagerð frá hinum ýmsu sjónarhornum. Kvikmyndasmiðjan mun standa yfir frá miðjum febrúar fram yfir páska og á þeim tíma munu þátttakendur fá að kynnast mismunandi aðferðum í kvikmyndagerð og fá tækifæri til að vinna að[…]
Í næstu viku hefst haustdagskrá SEV. Af því tilefni verður haldinn sameiginlegur fundur fyrir alla þátttakendur SEV á morgun föstudaginn 24. ágúst, þar sem farið verður yfir dagskrá haustsins.
Sameiginlegt jólahlaðborð Starfsendurhæfingar Vestfjarða, Vesturafls og Fjölsmiðju verður haldið fimmtudaginn 14. desember kl 12. Allir þátttakendur Starfsendurhæfingar Vestfjarða eru velkomnir að koma og borða góðan mat og eiga notalega stund.