Er SEV fyrir þig?
Ertu ….
- hætt/ur að vinna vegna heilsufarsvanda, en langar að komast í vinnu aftur? 
- búin/n að vera í endurhæfingu en ekki náð árangri, en finnst þú ennþá eiga eitthvað inni? 
- Með margþættan vanda þar sem þörf er á aðkomu mismunandi fagfólks 
- Tilbúin/n í að skoða alla anga lífs þíns og vinna með þá þætti sem mögulegar hindra atvinnuþátttöku? 
Hlutverk SEV ….
- er að veita starfsendurhæfingu þeim einstaklingum sem hafa þurft að hætta störfum vegna veikinda, slysa, félagslegra erfiðleika eða af öðrum ástæðum og vilja vinna að endurkomu á vinnumarkaðinn. 
- Þátttakendur eru einstaklingar í veikindaleifi frá starfi sínu, á sjúkradagpeningum frá stéttarfélagi, með örorkumat / endurhæfingarlífeyri, framfærslu frá sveitafélagi, á atvinnuleysisbótum eða ungt fólk án atvinnusögu og menntunar. 
Markmið SEV eru ….
- Að þátttakendur komist í vinnu eða nám sem styrkja mun stöðu þeirra gagnvart vinnumarkaði. 
- Að lífsgæði þátttakenda aukist. 
- Að lífsgæði fjölskyldna þátttakenda aukist. 
- Að endurhæfing fari fram í heimabyggð. 
