Flestum þátttakendum er vísað til okkar frá VIRK starfsendurhæfingarsjóði. Til þess að komast í einstaklingsmiðaða þverfaglega endurhæfingu (hlekk á eþe) hjá SEV þarf því fyrst að fara fram eftirfarandi ferli:
- Fyrst þarf að panta tíma hjá heimilislækni og óska eftir beiðni um þjónustu VIRK. Ef læknir telur að einstaklingur hafi þörf fyrir starfsendurhæfingu, þá sendir hann beiðni til VIRK.
- Hjá VIRK er farið yfir allar beiðnir sem berast og ef skilyrðum um þjónustu er uppfyllt er viðkomandi gefinn tími hjá ráðgjafa VIRK.
- Ráðgjafi hefur síðan samband við einstaklinginn og boðar hann í viðtal. Ráðgjafi ákveður svo í samráði við sérfræðinga VIRK hvort að viðkomandi einstaklingi er vísað áfram í endurhæfingu hjá SEV.
- Ráðgjafi VIRK sendi þá tilvísun til SEV og starfsmaður SEV hefur samband við viðkomandi.
Einstaklingar sem eru í starfsendurhæfingu annarsstaðar en hjá SEV, geta nýtt sér þau stöku úrræði sem í boði eru hjá SEV og hafa VIRK, Vinnumálastofnun og sveitarfélög nýtt þann möguleika og vísað einstaklingum í þjónustu hjá þeim í þessi stöku úrræði.