Endurhæfingin hjá SEV


Hjá SEV bjóðum við upp á heildstæða, einstaklingsmiðaða og þverfaglega starfsendurhæfingu. Markmiðið er að styðja þátttakendur við að yfirstíga þær áskoranir sem standa í vegi fyrir atvinnuþátttöku, bættri heilsu og almennum lífsgæðum.
Áherslur í okkar starfi
Við blöndum saman hópúrræðum og einstaklingsbundnum lausnum sem miða að því að efla fólk til sjálfshjálpar á forsendum hvers og eins.
- Dagleg virkni: Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá í boði.
- Jafningjastuðningur: Samvera og stuðningur frá öðrum í svipaðri stöðu er dýrmætur hluti af ferlinu.
- Fjölbreytt úrræði: Boðið er upp á fræðslu, náttúrutíma og vinnustofur.
Einstaklingsbundin þjónusta
Auk þátttöku í dagskránni er boðið upp á þverfaglega einstaklingsþjónustu eftir þörfum hvers og eins:
- Andleg heilsa: Sálfræðiþjónusta
- Líkamleg heilsa: Sjúkraþjálfun, líkamsþjálfun og næringarráðgjöf.
- Ráðgjöf og menntun: Menntun og fræðsla ásamt fjármálaráðgjöf.


Leiðin aftur út á vinnumarkaðinn
Þegar þátttakendur eru tilbúnir gefst möguleiki á að prófa starfsgetu eða taka skrefin út á vinnumarkaðinn með stuðningi starfsfólks SEV. Þetta fer fram í gegnum:
- Vinnuprófun og starfsþjálfun.
- Reynslu á almennum vinnumarkaði, ýmist samhliða endurhæfingu eða sem lokaskref í ferlinu.
© 2025 Starfsendurhæfing Vestfjarða. Allur réttur áskilinn.
