Einstaklingsmiðuð þverfagleg endurhæfing.
- Mótuð er endurhæfingaráætlun sem hentar þörfum og áhugasviði hvers og eins þátttakanda. Áætlunin inniheldur bæði einstaklingsmiðaða þjónustu og hópastarf og nemur að lágmarki 15 – 20 tímum á viku. Lengd endurhæfingar er einstaklingsbundin en algengt er að hún sé 6 – 12 mánuðir. Alltaf er stefnt á þátttöku á vinnumarkaði og lýkur endurhæfingu oft með vinnuprófun, starfsþjálfun eða ráðningu á almennum vinnumarkaði.
Mat á stöðu
- Stutt úrræði þar sem markmiðið er að meta raunhæfi þess að hefja markvissa starfsendurhæfingu. Gerð er áætlun sem hentar þörfum og áhugasviði hvers þátttakanda og inniheldur að lágmarki 12 – 15 tíma á viku. Mat á stöðu er aldrei meira en 1 – 2 mánuði. Ef endurhæfing hjá SEV hentar einstaklingi, getur hann haldið áfram í Einstaklingsmiðaðri þverfaglegri endurhæfingu.
Eftirfylgni
- Eftir einstaklingsmiðaða þverfaglega endurhæfingu er möguleiki á tímabili þar sem boðið er upp á áframhaldandi stuðning við einstaklinga hjá starfsmönnum SEV, líkamsrækt og umsjón með vinnusamningum ef það á við.
Stök úrræði / námskeið
- SEV heldur úti öflugri dagskrá alla daga vikunnar, sem þátttakendur SEV geta tekið þátt í að eigin vali. Þessi námskeið er einnig hægt að kaupa sem stök úrræði fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu sem ekki stunda endurhæfingu í SEV. Þessi úrræði eru ýmist fastir liðir í dagsrá SEV eða námskeið sem haldin eru einu sinni til tvisvar sinnum og eru t.d.:
- Náttúrutengd endurhæfing
- Vinnustofa – ýmiskonar handverk
- Líkamsrækt undir handleiðslu sjúkraþjálfara – hóptími
- Heilsuefling
- Áföll hvað svo?
- HAM námskeið
- Draumar og drekar
- Fjármálanámskeið
- Verkjaskóli